Blaðberar

Við erum alltaf að leita af öflugum einstaklingum til að bæta við okkar frábæra blaðbera hóp

  • Við bjóðum uppá:
  • Góða hreyfingu á launum
  • Farsímaáskrift frá vodafone að auki
  • Vinnudagurinn búinn kl 7.00
Sækja um

Við hjá Póstdreifingu leitum að duglegu og ábyrgu fólki til að bera út blöð og annað prentefni á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Vinnan fer fram á morgnana og á útburður á að vera lokið fyrir klukkan 7:00 á morgnana sex daga vikunnar, mánudaga til laugardaga.
Ef þetta er eitthvað sem sem gæti átt við þig sendu þá inn umsókn í dag og við munum hafa samband við þig.

Vinnureglur

Póst- og blaðberar Póstdreifingar eru andlit fyrirtækisins út á við.
Því er nauðsynlegt að þeir sýni þjónustulipurð, kurteisi og tillitssemi við dreifinguna og kappkosti að valda sem minnstu ónæði við íbúa sem þeir bera út hjá. Þannig þurfa starfsmenn að ganga hljóðlega um við útburð og fylgja eftirfarandi vinnureglum:

  • Setja skal blöð og póst í póstkassa inn um póstlúgur þannig að þær lokist. Blöð og póst má alls ekki setja ofan á póstkassa eða á gólf.
  • Mikilvægt er að láta dreifingadeild Póstdreifingar vita ef það vantar einhvern hluta dreifingarefnis, hvort sem það eru fríblöð, fjölpóstur eða nafnamerktur póstur.
  • Ef dreifingarefni er skemmt (t.d. rifinn eða blautur) skal honum ekki dreift. Ef þig vantar ný eintök hafðu þá strax samband við dreifingadeild Póstdreifingar.
  • Ef póstkassi er fullur og greinilegt er að enginn hefur tæmt hann lengi skal honum sleppt nema þegar um nafnamerktan póst er að ræða. Nafnamerktum pósti skal ávallt dreift á viðkomandi nafn og heimilisfang.
  • Ef eigandi hefur merkt póstkassa þannig að hann vilji ekki fjölpóst skal honum sleppt ef um fjölpóst er að ræða. Blöð eins og t.d. Fréttablaðið, Mannlíf, Morgunblaðið í aldreifingu, N4 dagskráin og Vikudagskráin flokkast hins vegar ekki sem fjölpóstur heldur eru þau flokkuð sem fríblað. Sama regla gildir um póstkassa sem merktir eru sérstaklega að viðkomandi vilji ekki Fréttablaðið eða önnur fríblöð.
  • Ef afgangur verður á dreifingarefni ber að tilkynna það til Póstdreifingar. Nafnamerktum apósti má aldrei farga, slíkt varðar við lög og veldur brottreksti án frekari viðvörunar.
  • Plasti er vafið utan um blaðapakka og annað dreifingarefni til að verja það fyrir bleytu og hnjaski. Póstdreifing biður póst- og blaðbera að hafa umhverfi sitt í huga þegar plastið er fjarlægt og fleygja því strax í ruslið.

Líkamsbeiting við póstburðarstörf

Við póstburðarstörf þarf að gæta vel að líkamsbeitingu og hér á eftir fara góð ráð sem hafa ber í huga við blaðburð:

  • Reyndu að vinna öll verk sem næst þér.
  • Farðu nálægt blaðapakkanum þegar þú tekur hann upp af jörðinni.
  • Farðu nálægt lúgum, það er óþarfa álag að teygja sig í þær.
  • Reyndu að hafa blaðakerruna nálægt þér þegar henni er ýtt.
  • Notaðu líkamsþungann til að ýta kerrunni, það er óþarfi að beita of miklu handafli.
  • Láttu fæturna vinna en hlífðu bakinu.
  • Gættu að þér þar sem lúgur eru lágar, beygðu hné og mjaðmir frekar en bakið.
  • Sama á við þegar þú nærð í blöðin í blaðakerruna.
  • Þegar þú notar ekki kerru við útburð notaðu þá frekar tvo poka en einn, það dreifir álaginu jafnar á bakið en þegar allt er í einum poka.
  • Láttu fæturna vinna en hlífðu bakinu.
  • Gættu að þér þar sem lúgur eru lágar, beygðu hné og mjaðmir frekar en bakið.
  • Sama á við þegar þú nærð í blöðin í blaðakerruna.
  • Þegar þú notar ekki kerru við útburð notaðu þá frekar tvo poka en einn, það dreifir álaginu jafnar á bakið en þegar allt er í einum poka
  • Reyndu að vinna öll verk sem næst þér.
  • Farðu nálægt blaðapakkanum þegar þú tekur hann upp af jörðinni.
  • Farðu nálægt lúgum, það er óþarfa álag að teygja sig í þær.
  • Reyndu að hafa blaðakerruna nálægt þér þegar henni er ýtt.

Vinnutími

KÆRU BLAÐBERAR VIÐ ERUM HÉR

Ef eitthvað er er óljóst varðandi útburð, dreifingarreglur, frí, laun osfrv., hafðu þú þá samband með því að senda tölvupóst á bladberi@postdreifing.is

Sími dreifingardeildar er:
585 8330

Minnum einnig á Grænt & Gjaldfrjálst númer:
800 1177

Veikindi þarf að tilkynna í síma:
669 8387

Almennur vinnutími
Virkir dagar: Útburði lokið fyrir kl 7:00
Laugardagar: Útburði lokið fyrir kl 7:00
Sunnudagar: Enginn útburður

Enginn útburður er eftirfarandi daga

  • 1. janúar
  • Föstudagurinn langi
  • Annar í páskum
  • Annar í hvítasunnu
  • Frídagur verslunarmanna
  • Jóladagur
  • Annar í jólum

Þegar borið er út á rauðum dögum, er greitt helgidagaálag